Lög Mannfræðifélags Íslands
1. gr. Nafn félagsins er Mannfræðifélag Íslands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur félagsins er:
a. að efla fræðilega umræðu meðal félagsmanna.
b. að vera vettvangur umræðna um þjóðfélagsmál
c. standa að ráðstefnum og fyrirlestrum um mannfræðileg málefni.
3. gr. Félagsmaður getur sá orðið sem lokið hefur háskólaprófi í mannfræði eða sá sem stundar framhaldsnám (masters- eða doktorsnám) í mannfræði. Félagsmenn eru þeir sem hafa skráð sig í félagið og greitt félagsgjald. Aukaaðild að félaginu geta þeir fengið sem stunda grunnnám í mannfræði á háskólastigi gegn greiðslu á hálfu árgjaldi. Aukafélagar hafa málfrelsi og tillögurétt.
4. gr. Stjórnin boðar til félagsfundar þegar hún telur þörf á eða 5 eða fleiri félagsmenn óska þess. Boða skal til fundar skriflega með bréfi eða tölvupósti með minnst 7 daga fyrirvara.
5. gr. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Skal hann haldinn að vori ár hvert – eigi síðar en í júní[1]. Boða skal til aðalfundar skriflega með bréfi eða tölvupósti með minnst 14 daga fyrirvara. Með fundarboði skulu fylgja tillögur um lagabreytingar frá stjórn. Aðrar lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn skriflega eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum nema annars sé getið í lögum þessum. Atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagsmenn. Fastir liðir á dagskrá skulu vera:
a. Skýrsla formanns.
b. Að leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins.
c. Að kjósa fimm manna stjórn og tvo varamenn. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Endurkjör er heimilt allt að fjögur ár. Nemendafélagi mannfræðinema við Háskóla Íslands, Homo, skal gefinn kostur á að tilnefna frambjóðanda til stjórnarkjörs[2].
d. Að kjósa tvo skoðunarmenn reikninga.
e. Að ákveða félagsgjöld.
f. Lagabreytingar
g. Önnur mál.
6. gr. Á fyrsta stjórnarfundi velur stjórn formann, gjaldkera og ritara, sem jafnframt er varaformaður. Stjórn félagsins ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þess setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess. Fyrir meiriháttar fjárhagslegum skuldbindingum þarf samþykki félagsfundar. Gerðir stjórnar skulu bókaðar.
7. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi. Til lagabreytinga þarf tvo þriðju hluta greiddra atkvæða.
[1] Breytt á aðalfundi 7. júní 2007.
[2] Breytt á aðalfundi 9. júní 2011.

