Mannfræðifélag Íslands býður til þorrablóts föstudaginn 20. janúar næstkomandi á Ölsmiðjunni í Lækjargötu. Gleðin byrjar kl. 20 með fyrirlestri Kristínar Einarsdóttur þjóðfræðings með aðstoð og uppstandi Uglu Egilsdóttur. Léttar þorraveitingar verða í boði ásamt viðeigandi drykk, söngur, dans og happdrætti með frábærum vinningum.

Aðgangur er 1000 kr. fyrir félagsmenn og 2000 kr. fyrir aðra. Það er afar mikilvægt að fólk skrái sig og borgi fyrirfram svo hægt sé að panta matinn.

Sjáið nánari upplýsingar á facebook síðu félagsins varðandi greiðslu. Borga þarf fyrirfram fyrir miðnætti mánudaginn 16. janúar og  gott væri einnig að fá póst á anthro.is@gmail.com. Aðgangsmiðinn er jafnframt happdrættismiði.

Minnt er á að hægt er að gerast félagi í Mannfræðifélaginu fyrir þorrablótið, árgjaldið er 3000 kr. en 1500 kr. fyrir BA nema í mannfræði.

Gíróseðlarnir fyrir árgjöldin eru einmitt að detta inn í heimabankann ykkur um þessar mundir. Um leið og Mannfræðifélagið þakkar stuðninginn á liðnum árum þá viljum við minna á að það er ykkur að þakka að við getum boðið upp á metnaðarfulla dagskrá.

Við viljum hvetja alla mannfræðinga og áhugamenn um mannfræði að fjölmenna á þorrablótið og eiga með okkur ánægjulega stund næsta föstudag.

Stjórn MÍ