Næsti fyrirlestur Mannfræðifélagsins verður þriðjudaginn 8. nóvember næstkomandi í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð og hefst kl. 20.
Í þetta sinn mun Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur og doktorsnemi í mannfræði ræða um Landamæri lífs og dauða: Hvenær hættir maður að vera barn foreldra sinna?
„Ýmis lífsverkefni mæta okkur með ólíkum hætti á hinum ýmsu æviskeiðum. Sambönd foreldra og barna eru að mörgu leyti grundvallandi fyrir hin ýmsu samskipti í samfélaginu. Orðatiltækið: “Sá stjórnar heiminum, sem vaggar barninu” lýsir því hvernig uppeldismótun hefur víðtæk áhrif á æviferil einstaklingsins. Mjög mismunandi er hvenær börn fara að heiman. Sum þeirra fara líkast til aldrei alveg að heiman tilfinningalega. Önnur leitast við að lýsa yfir sjálfstæði sínu með því að rjúfa tengslin sem mest. Foreldrar geta líka lýst yfir sjálfstæði sínu gagnvart börnum sínum með því að minnka tengslin. Sum börn verða vinir eða vinkonur foreldra sinna þegar fullorðinsárum er náð. Það hlýtur að teljast eðlilegt, að fullorðinssamskipti foreldra og barna feli í sér tengsl sem hafa þróast frá bernsku yfir í sjálfstæði og gagnkvæma virðingu þar sem báðir aðilar njóta jafnræðis. Sé ekki svo er hætt við að eitthvað í þroska annað hvort foreldris eða barns hafi farið úrskeiðis. Hrörnun efri áranna getur leitt til þess, að foreldri missi sjálfstæði sitt og verði þar með háð barni sínu, verði eins og barn barnsins síns. Ekki er víst að slík breyting á hlutverkum verði barninu auðveld, sérstaklega ekki ef fullorðinssamskiptin hafa ekki verið í jafnvægi. Sú rannsókn, sem hér um ræðir, beinist að íslenskum ekklum, sem misstu konur sínar á árunum 1999-2001, og samanburðarhópi kvæntra karla, sem fæddir eru á sama ári og ekklarnir og eru með búsetu á sama stað. Veikindi og síðar andlát eiginkonunnar/móðurinnar höfðu veruleg áhrif á líf barna þeirra. Þáttur fjölskyldunnar er mikill í aðdraganda að andláti eiginkonunnar og í sorgarferlinu eftir andlátið. Nokkrar breytingar urðu á samskiptum stórs hóps ekkla við börn sín. Þeir fengu aðstoð úr ýmsum áttum, sem gerð verður grein fyrir. Andstætt því sem margir halda, þá voru ekklarnir ekki fljótir í aðra sambúð. Þeir ekklar sem höfðu flust búferlum höfðu margir flutt nær börnum sínum.”
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta.



Skrá ummæli
Comments feed for this article