
Þema fyrirlestraraðar Mannfræðifélags Íslands veturinn 2011-2012 er …. þvert á landamæri. Áhugaverð dagskrá hefur verið sett inn á vef félagsins, og þið eruð hvött til að skoða hana nánar. Fyrsti viðburður þessa starfsárs verður með óformlegum hætti og verður haldinn þriðjudaginn 13. september á bókakaffinu Glætunni, Laugavegi 19, Reykjavík, 2. hæð, klukkan 20.00. Dagskrá vetrarins verður kynnt og síðan verða fyrirlesarar þau Ármann H. Gunnarsson, MA nemi í hagnýtri menningarmiðlun og mannréttindaguðfræði og Harpa Stefánsdóttir, MA nemi í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun. Þau munu segja frá starfi sínu hjá mannréttindasamtökunum Social Action Movement á Indlandi.
Félagsmenn, og aðrir sem áhuga hafa á starfsemi félagsins eru hvattir til að mæta á staðinn, kynna sér dagskrá vetrarins og taka þátt í umræðum.
Munið að Mannfræðifélagið er líka á facebook og þar er hægt að fylgjast vel með hvað er í gangi hverju sinni þannig að endilega sláist í hópinn.
Allir velkomnir


Skrá ummæli
Comments feed for this article