Boðað er til aðalfundar Mannfræðifélags Íslands þann 9. júní kl. 20 í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 107 Reykjavík. Skv. lögum félagsins skal aðalfundur haldinn ekki síðar en í júní ár hvert og boða skal til hans með minnst 14 daga fyrirvara. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn skriflega eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá:
a. Skýrsla formanns.
b. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram.
c. Kosning fimm manna stjórnar og tvo varamanna.
d. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
e. Félagsgjöld.
f. Lagabreytingar
g. Önnur mál.


Skrá ummæli
Comments feed for this article