Dr. Paul Basu mun flytja fyrirlestur í ReykjavíkurAkademíunni á vegum Mannfræðifélags Íslands, þriðjudaginn 12. apríl kl. 20:00. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Á fyrirlestrinum mun hann ræða þátttöku sína í Afríku verkefni á vegum British Museum sem fram fór í Sierra Leone og verkefninu “Reanimating Cultural Heritage”. Paul nýtir samlíkingu við tvíheima (e. diaspora) til að endurskoða tengslin á milli þjóðfræðilegra safna (e. collections) og svokallaðra “uppruna samfélaga”. Hann kannar hvernig söfn geta á ólíkan hátt öðlast nýtt líf þegar safnaheimurinn og miðlunarheimurinn snertast gegnum stafræn söfn. Markmið hans er að velta fyrir sér gildi safna, þekkingar og nettengdra menningarstofnanna sem og möguleikum þeirra til að leggja eitthvað þýðingarmikið af mörkum til að endurvekja samfélagið sjálft á breiðari grundvelli, í samhengi við pólitískar og hagfræðilegar áskoranir.

Paul Basu er félagsmannfræðingur og ráðgjafi á sviði safna/menningararfs. Hann starfaði um árabil við kvikmyndagerð og framleiðslu sjónvarpsefnis. Hann lauk MSc prófi í félagsmannfræði árið 1996 og PhD prófi í mannfræði árið 2002, bæði við University College London, undir leiðsögn Barbara Bender og Christopher Tilley. Paul kenndi í nokkur ár við mannfræðideild Sussex University, en snéri aftur til UCL árið 2009 sem Reader í efnismenningar-fræðum og safnafræði. Útgefin verk Paul Basu eru meðal annarra: Highland Homecomings: Genealogy and Heritage Tourism in the Scottish Diaspora (Routledge, 2007), Exhibition Experiments (ritstjóri ásamt Sharon Macdonald, Blackwell, 2007), og sérútgáfa af Mobilities um þemað ‘Migrant Worlds, Material Cultures’ (ritstjóri ásamt Simon Coleman, 2008). Paul Basu hefur umsjón með námi í safnafræði við UCL og er ritstjóri Journal of Material Culture.

ALLIR VELKOMNIR!