Þriðjudaginn 8. mars kl. 20:00 mun dr. Hallfríður Þórarinsdóttir flytja fyrirlestur á vegum Mannfræðifélags Íslands í ReykjavíkurAkademíunni. Í erindinu verða kynntar niðurstöður úr viðtalskönnun við tæplega 500 Pólverja búsetta á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur voru m.a. inntir eftir reynslu sinni af íslenskum vinnumarkaði, réttindum og skyldum, menntun og nýtingu hennar, samskiptum við Íslendinga í og utan vinnu ásamt mörgu fleiru. Viðtölin voru tekin frá maí til ágúst 2010 Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni sem MIRRA vinnur með Varsjárháskóla og rannsóknarstofnuninni Fafo í Osló í Noregi.
Hallfríður Þórarinsdóttir er með doktorsgráðu í menningarmannfræði frá The New School for Social Reseach í New York borg. Hún dvaldi um árabil erlendis og vann m.a við háskólakennslu. Hún stofnaði MIRRA, Miðstöð InnflytjendaRannsókna ReykajvíkurAkademíunni og hefur veitt henni forstöðu frá upphafi 2007.
ALLIR VELKOMNIR!


Skrá ummæli
Comments feed for this article