Hinn 8. febrúar 2011 gegnst Mannfræðifélag Íslands fyrir sýningu á heimildamyndinni Checkpoint. Sýningin verður í ReykjavíkurAkademíunni og hefst kl. 20. Viðstaddur sýninguna verður Ron Rotem sem er samstarfsmaður leikstjórans og mun hann taka þátt í umræðum að sýningu lokinni.

Checkpoint (upprunalegt heiti er Machssomim) er heimildamynd frá 2003 eftir ísraelska kvikmyndgerðarmanninn Yoav Shamir. Hann er þekktur fyrir heimildamyndir sínar sem fjalla á ýmsan hátt um stefnu ísraelskra stjórnvalda og hefur hann sjálfur sætt gagnrýni og jafnvel verið ásakaður um gyðingahatur vegna þess, en myndina Checkpoint byggir hann á eigin reynslu úr herþjónustu sinni í ísraelska hernum.
Myndin hefur engan raunverulegan söguþráð heldur er myndavélinni stillt upp við mismunandi varðstöðvar milli Gaza strandarinnar og Ísrael og sýnir samskipti ísraelskra hermanna og Palestínumanna. Varðstöðvarnar eru til að hafa stjórn á ferðum Palestínumanna á milli svæðanna og sagðar vera nauðsynlegar til að berjast gegn hryðjuverkum.

Hermennirnir stöðva Palestínumenn við varðstöðvarnar og athuga skilríki þeirra, stundum kemst fólk yfir án vandræða en oft er það látið bíða og jafnvel neitað um að komast yfir, að því er virðist vera, vegna duttlunga hermannanna. En það kemur einnig í ljós að hermennirnir stjórna ekki öllu og verða oft að fylgja tilviljanakenndum skipunum yfirmanna sinna. Tungumálaerfiðleikar gera ástandið enn verra en fæstir tala tungumál hins hópsins.

Myndin Checkpoint hefur fengið verðlaun á ýmsum kvikmyndahátíðum, m.a. sem Besta heimildamyndin á Alþjóðlegu heimildamyndahátíðinni í Amsterdam, Hot Docs Alþjóðlegu heimildahátíðinni í Kanada og Golden Gate verðlaunin fyrir heimildamynd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Francisco. 
 
Allir velkomnir.